Færsluflokkur: Bloggar

Ég er stolt valkyrja

Nú rignir yfir okkur fúkyrðum og skammaryrðum alls staðar að úr heiminum og óneitanlega fer um mann við að lesa allar þessar hótanir sem eru til þess ætlaðar að hræða okkur enn frekar.

En ég hef staðið frammi fyrir hótunum og kúgun og þó hjartað hafi hamast í brjósti mér hef ég blásið á þær.  Ég læt ekki buga mig með yfirgangi og frekju.  Og þó að eitthvað hafi orðið úr fyrrnefndum hótunum horfði ég samt björtum augum fram á veginn og með dyggum stuðningi ættingja og vina stóð ég þær af mér og í dag er ég sterkari kona en ég var áður.

Forsetanum okkar var greinilega órótt þegar hann las upp yfirlýsingu sína í morgun og á köflum hélt ég að hann myndi bresta í grát, enda var hann í gífurlega erfiðri aðstöðu.  En hann fylgdi sannfæringu sinni og má hann vita að að baki honum stendur stolt þjóð víkinga og valkyrja sem eru tilbúin að berjast með honum fyrir sannfæringu okkar allra.

Öxar við ána, árdags í ljóma,

upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.

Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,

skundum á Þingvöll og treystum vor heit.

Fram, fram, aldrei að víkja.

Fram, fram, bæði menn og fljóð.

Tengjumst tryggðarböndum,

tökum saman höndum,

stríðum, vinnum vorri þjóð

 Ef ég ætti flaggstöng myndi ég flagga í dag og á hverju ári þann 5. janúar til minningar um þann mikla þjóðlega kraft sem leystur var úr læðingi í dag og á að minna okkur á, um aldir alda, þann styrk sem þessi dýrðlega þjóð okkar býr yfir.

Guð blessi Ísland og guð blessi forsetann okkar 


mbl.is Staðfestir ekki Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað?

Ég er einföld sál og nenni ekki að velta mér upp úr pólitík.  En ég er ekki þessi týpa sem bregst vel við hótunum og neita að láta traðka á mér.  Ég ber enga ábyrgð á þessari Icesave vitfirru og get á engan hátt staðið undir áhættufjárfestingum breskra ríkisborgarar og sveitarfélaga sem ekki stóðust væntingar þeirra.  Og það kemur ekki einhver kall frá Bretlandi og segir mér að ef ég borgi ekki þá hljóti ég verra af.  Hver þykist hann vera?  Hann er ekkert merkilegri pappír en hver annar og hvers vegna í ósköpunum á ég að óttast hann?  Ísland er sjálfbært land og við getum fyllilega staðið undir okkur sjálf án einhverrar góðvildar frekjuþjóða sem vilja nýta vald sitt til að fá sínu framgengt.  Ok, lífið yrði kannski ekki eins og áður var en mér er bara alveg sama, ég er Íslendingur og bý yfir aðlögunarhæfni og mitt líf mun halda áfram hvort sem þessi gamli kall er vinur minn eða ekki.

Jájá, ég veit, málið er miklu flóknara en þetta og ég skil auðvitað ekki hvað hér er í húfi, enda bara einfaldur almenningur og mér er nær að láta þetta stjórnmálahyski bara sjá um þetta mál, í mínu nafni og mínu umboði enda algjörlega verið að bera hag okkar þjóðarinnar fyrir brjósti.  En sorry stína, mér finnst þetta lið bara vera gungur, upp til hópa.  Að samþykkja ábyrgð okkar vegna Icesave vegna þess að við gætum fengið "allar hinar þjóðirnar" upp á móti okkur.  Og hvað verður þá um litla Ísland?  Við munum einangrast úti í ballarhafi og aldrei nokkurn tíma aftur eiga afturkvæmt í samfélag þjóðanna.

Djöfulsins endemis vitleysa er það!  Auðvitað verða þessir frekjuhundar bálreiðir og munu leita allra leiða til að gera okkur lífið leitt enda hafa þeir verið að bíða eftir tækifæri síðan við völtuðum yfir þá í þorskastríðinu.  En við gátum bitið þá af okkur þá og afhverju þá ekki aftur núna?  Og hefur Ísland ekki ávallt verið fyrirmynd annara þjóða?  Vorum fyrst til að viðurkenna sjálfstæði Litháen, förum ekki í stríð við aðrar þjóðir, stundum ekki rányrkju og LÁTUM EKKI STÓRÞJÓÐIR VALTA YFIR OKKUR MEÐ HÓTUNUM OG FREKJU!  Væru það ekki sterk skilaboð til samfélags þjóðanna að svona háttalag gangi bara ekki upp?  Ég er viss um að við fengjum fleiri þjóðir að baki okkur en við verðum að stíga fyrsta skrefið, við verðum að sýna kjarkinn sem býr í okkur og bjóða þessu liði birginn.

Ákvarðanir skulu ávallt teknar á réttum forsendum.  Ekki undir þrýstingi, þvingunum og hótunum, slíkar ákvarðanir eru alltaf rangar.  Íslenska þjóðin gerði ekkert af sér gagnvart Icesave sparifjáreigendum og það er það sem málið snýst um.  Ef við bara stöndum saman, staðföst og örugg í sannfæringu okkar þá mun ekkert okkur skaða, við munum standa eftir sem sterkari þjóð fyrir vikið, sama hver viðbrögð úlfanna verða.

Herra forseti, ég skora á þig að vera leiðtogi þessarar þjóðar sem hér berst fyrir lífi sínu og ganga fram fyrir skjöldu sem táknmynd þess vilja sem þjóðin hefur lýst yfir.  Við samþykkjum ekki Icesave samkomulag! 

 


mbl.is Icesave-samkomulag mikilvægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný tegund múslima?

Þetta er auðvitað hárrétt hjá manninum, þessi klæðnaður er gersamlega út úr einhverjum kýrhausi gamalla karla í Afdalakistan og hefur nákvæmlega EKKERT með Islam að gera.  Gott að vita að a.m.k. einn þessara klerka er tilbúinn til að sýna örlitla sjálfstæða hugsun.  Ætli hann verði svo skotinn eða sprengdur í loft upp?
mbl.is Egypskum konum bannað að hylja líkamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sæll!

Er þetta ekki til fullmikils ætlast af manninum? Og hvað gerir maður þegar hundurinn étur heimavinnuna? Það er enginn afsláttur veittur á svoleiðis afsökunum, maður verður bara að vinna hana uppá nýtt. Ég sé mig í anda fara í næsta banka og krefast þess að bankinn afhendi mér 5.000 kall (dem, afhverju eigum við ekki 50.000 króna seðil) afþví að hundurinn minn gleypti hann með húð og hár. Væri fullmikil hræsni af minni hálfu þar sem ég geri börnin mín ábyrg fyrir því að passa skóna sína því við VITUM að hundurinn étur þá. Kræst, sumt fólk á bara ekkert líf.
mbl.is Kötturinn át 500 evruseðil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff, hrollur

Maður á erfitt með að ímynda sér hvað aumingja börnin hafa þurft að þola.  Hvernig verða svona skrýmsli til sem fara svona með börnin okkar, þessar fallegustu verur jarðar?  En guði sé lof að þessum börnum var bjargað, vonandi er hægt að hjálpa þeim til að komast sem best frá þessu svo að a.m.k. framtíðin verði þeim bærileg.  En við svona frétt leiðir maður óneitanlega hugann að öllum þeim milljónum barna um allan heim sem aldrei er bjargað úr slíku helvíti.  Hvernig getum við bjargað ÖLLUM þessum börnum? 
mbl.is Fimm börnum bjargað úr kynlífsþrælkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geirsnef og Elliðaárnar

Hundurinn minn er sundsjúkur.  Ef ég fer með hann á Geirsnef þá stingur hann sér í ána.  Ef einhver vogar sér að skjóta hann þá brýt ég veiðistöngina hans og grilla laxana hans í kvöldmatinn. 

En án gríns, þessi grey meiga ekki synda í fjörunni útá Seltjarnarnesi fyrr en eftir 1. júlí, ekki útá Geirsnefi fyrr en um miðjan október og annarsstaðar meiga þeir ekki vera lausir.  Ekki læt ég hvutta synda í bandi.  Hvað á ég að gera?

Bendi svo hundaeigendum á Geirsnef á Facebook: http://www.facebook.com/home.php#/group.php?gid=88396929409&ref=nf


mbl.is Styrjöld á Geirsnefi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur eða börn?

Fréttin byrjar á því að lýsa því hvernig Nígerískar konur eru neyddar til að stunda vændi í Evrópu og það svo margendurtekið í fréttinni að um konur sé að ræða.  Í niðurlagi fréttarinnar kemur svo fram að umræddar "konur" eru á aldrinum 12-18 ára!!  Þetta er alvarleg frétt, hvort sem um er að ræða konur eða börn.  Afhverju er hún ekki unnin almennilega?  Mér finnst þetta vera virðingar- og skeytingarleysi gagnvart fórnarlömbunum að vinna svona frétt með hangandi hendi.  Í stað þess að fjalla um þetta á upplýsandi og faglegan máta þá er þessu slegið upp í einhverjum æsifréttastíl:  "Þvingaðar í vændi með vúdú göldrum".  Vá, bara eins og í einhverjum reyfara.  Það gleymist að það eru raunverulegar manneskjur á bakvið þessa frétt, manneskjur sem eru í raun að upplifa allt það sem hér er lýst.  Af hverju eru höfundir þessara frétta aldrei nafngreindir?  Mér finnst sorglega mikið um lélegan fréttaflutning á borð við þennan á þessum fréttamiðlum.  Skammist ykkar bara, fréttaritari og þú sem samþykkir þessa frétt til birtingar.
mbl.is Þvingaðar í vændi með vúdú göldrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sannleikurinn" að baki Vofunni

Þetta er nú aldeilis ótrúlegt.  Hvað ef raunverulega sé um að ræða fjöldamorðingja, sem sé kona og vilji svo til að starfi í umræddri verksmiðju.  Væri það nú ekki fáránleg tilviljun.  En svo sleppur hún þar sem lögreglan telur að DNA hennar sé komið á bómullarpinnana vegna þess að hún hafi snert þá í verksmiðjunni en ekki vegna þess að það hafi raunverulega fundist á vettvangi.  Hvað ef þessi kona var bara hundleið verksmiðjugella sem dundaði sér við það í vinnunni að reyna að hugsa um hinn fullkomna glæp.  Svona til að létta sér lundina við (örugglega) hundleiðinlega vinnuna.  Og datt þetta snjallræði í hug að fremja nokkur morð en að káfa líka á nógu andskoti mörgum bómullarpinnum í vinnunni til að villa um fyrir lögreglunni.  Ætli það gæti verið . . . . .
mbl.is Eftirlýstur fjöldamorðingi væntanlega ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins heil hugsun

Megi þetta fólk vel lifa sem tók þessa ákvörðun, hef pirrað mig yfir skilningsleysi dagskrárstjóra í áraraðir og geri enn.  Nú get ég þó hætt að pirra mig yfir auglýsingum í kringum barnatíma og einbeitt mér að ömurlegri tímasetningu Skjás eins á efni sem hentar börnum en er sýnt of seint eða efni sem ekki hentar börnum og er sýnt of snemma.


mbl.is Engar auglýsingar í tengslum við barnaefni í Sjónvarpinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er þetta fallegur kaffibolli. . . .

. . . .  mig langar í hann.

 Mér dytti hinsvegar ekki í hug að leyfa börnunum mínum að drekka þetta, þarf reyndar ekki að hafa mikið fyrir því að halda kaffi frá þeim.  Þau hafa öll smakkað kaffi og finnst það vitanlega vont, veit ekki um mörg börn sem geta látið kaffi inn fyrir sínar varir.

 Það er annað mál með orkudrykkina.  Í íþróttahúsinu, þar sem þau æfa karate oft í viku, sjá þau iðulega fullorðna íþróttamenn sötrandi á Gatorade og öðrum orkudrykkjum.  Þetta er svo líka selt í sjoppunni þar eða einhverjum sjálfsala.  Verst þykir mér þó að á öllum mótum (ath. þetta eru barna- og unglingamót sem ég er að tala um hérna) eru seldir orkudrykkir. 

Þetta er auðvitað bara enn eitt áreitið á okkur foreldrana.  Við þurfum að hafa stjórn á tölvuleikjum og sjónvarpsglápi, passa að þau vinni heimavinnuna, klæði sig eftir veðri, séu komin heim á réttum tíma, borði grænmetið sitt og ávextina með mat og milli mála og fái sér eitthvað annað en kex og kókómjólk í drekkutímanum.  Reka þau í rúmið á réttum tíma, drífa þau tímanlega á fætur, sjá til þess að þau bursti tennurnar og skipti um nærbuxur fyrir utan öll möguleg hegðunar- og agavandamál sem þarf að hafa stjórn á dags daglega svo þau taki nú ekki yfir heimilið.  Eins og flestum foreldrum ætti að vera ljóst er hér aðeins stiklað á stóru, því vinnan við uppeldi barna er svo miklu meiri en hér er upp talið.  Að þurfa að díla við svona rusl eins og orkudrykki er því bara enn annar dropinn í þetta mikla haf neitana sem við mömmur (og pabbar) þurfum að láta út úr okkur við börnin okkar á hverjum einasta degi.

Ég er blessunarlega mjög þrjósk og ef ég er búin að bíta það í mig að börnin mín fái ekki orkudrykki þá situr þar við og lítið sem fær haggað þeirri ákvörðun.  Hinsvegar eru ekki allir foreldrar blessaðir með þessum hæfileika og því mun auðveldara fyrir marga að láta undan hinu Eilífa Tuði en að standa á sínu, sér í lagi í ljósi þess að það er svo margt annað, mun mikilvægara sem við þurfum að vernda börnin okkar fyrir. 

En þó ég leyfi mínum börnum ekki að drekka orkudrykki þá dæmi ég ekki þá foreldra sem það gera.  Enda leyfi ég mínum samt að drekka kók og pepsí. 


mbl.is Koffín fyrir krakka?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband