Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Halló tannlæknar!

Hvað er þetta með tannlæknastéttina, ef ég mætti spyrja?  Og vonandi að einhver tannlæknir svari mér og útskýri hversvega í ósköpunum maður getur ekki fengið uppgefið verð í síma áður en maður pantar tíma hjá þeim. 

Svörin eru ALLTAF ferlega loðin og óskýr; "Tja, það fer eftir svo miklu, eiginlega ekki hægt að segja til um það".  Og þá segir maður: "ertu til í að gefa mér svona gróflega áætlað, svo maður hafi einhverja hugmynd?"  Og þá kemur: "Tja, það gæti verið svona á bilinu 10-20.000" 

Svo svara líka ALLTAF stelpur eða konur í símann sem geta ekki svarað einni einustu spurningu nema segja: "bíddu aðeins" fyrst og spyrja einhvern annan.  Og þá spyr maður: "Liggur ekki verðskrá frammi hjá ykkur, geturðu ekki bara lesið uppúr henni fyrir mig?"  Og þá er svarað: "Tja, hún er bara svona til viðmiðunar" eða "við erum ekki búin að setja hana fram ennþá"!!

 Ég á 3 börn og mann og oft þarf maður að panta tíma fyrir einhvern hjá tannlækni og að sjálfsögðu reynir maður að finna hagstætt verð.  Ekki mætir maður bara hjá næsta tannlækni án þess að hafa huuuuugmynd um hvað djobbið kostar, enda oft um fleiri, fleiri þúsundir að ræða og þá skiptir hver þúsundkall máli.  Og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ofangreindar samræður eiga sér stað við ritara tannlækna í HVERT EINASTA skipti sem ég geri þetta. 

Og alltaf endar það þannig að maður fer til tannlæknis án þess að vita verðið og fær svo ALLTAF áfall þegar kemur að greiðslu.

Þetta er ekki hægt og ég krefst þess að tannlæknar sýni okkur tanneigendum þá virðingu að gefa upp verð á þjónustu sinni, allir aðrir verða að gera það, af hverju eru tannlæknar svona sérstakir?

Ef einhver getur bent mér á tannlækni sem gefur manni upp verð fyrir þjónustuna án múðurs eða ef einhver tannlæknir er til í að gera mér tilboð í að fjarlægja endajaxl sem er farin að gægjast út en ætlar sér að ryðja niður næsta jaxli við hliðina, þá þigg ég það með þökkum Pinch


Sniðgöngum Ólympíuleikana

Ef þetta er rétt þá ætla ég ekki að horfa á neinar greinar á Ólympíuleikunum.  Ég veit það breytir ekki neinu þó ÉG horfi ekki, en ekki get ég með góðri samvisku notið þessa atburðar, vitandi það að þúsundir þeirra sem gerðu hann mögulegan hafa verið misnotaðir.  Svo ég sleppi því að horfa, hugsa hlýtt til allra þeirra sem búa við þrældóm í heiminum í dag og bíð eftir mínu tækifæri til að breyta heiminum. Crying


mbl.is Börn í þrældómi búa til vörur fyrir Ólympíuleikana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALMENN SKYNSEMI

Er þetta ekki fáránlegt, maður þekkir þetta fólk ekki neitt og veit nákvæmlega ekkert nema það að aumingja fólkið hefur örugglega drukknað (nýbúin að sjá Adrift :) og ég fann sko til í hjartanu í morgun þegar ég las að ekki væri enn búið að finna fólkið síðan í gær.  Var sko alveg viss um að þau væru bara dáin. 

Og svo finnast þau bara á lífi í útilegu eins og ekkert sé og fleiri hundruð manns tilbúnir að hætta lífi og limum til að bjarga þeim frá bráðum bana!  Þetta er algerlega outrageous, það vita það allir að maður hringir alltaf í mömmu þegar maður leggur af stað í ferðalag og svo aftur þegar maður er kominn á áfangastað. 

Svona gerir maður bara ekki og skammast sín svo Angry


mbl.is Kajakræðarar fundnir heilir á húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband