Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Eins og biluð plata . . . . .

Hvað er þetta með tannlæknastéttina, ef ég mætti spyrja?  Tannlæknar sem þorið:  Vinsamlega svarið eftirfarandi færslu:

Hvernig stendur á því að maður getur ekki fengið uppgefið verð á tannlæknaþjónustu í síma ÁÐUR en maður pantar tíma? 

Svörin eru ALLTAF ferlega loðin og óskýr; "Tja, það fer eftir svo miklu, eiginlega ekki hægt að segja til um það".  Og þá segir maður: "ertu til í að gefa mér svona gróflega áætlað, svo maður hafi einhverja hugmynd?"  Og þá kemur: "Tja, það gæti verið svona á bilinu 10-20.000" 

Svo svara líka ALLTAF stelpur eða konur í símann sem geta ekki svarað einni einustu spurningu nema segja: "bíddu aðeins" fyrst og spyrja einhvern annan.  Og þá spyr maður: "Liggur ekki verðskrá frammi hjá ykkur, geturðu ekki bara lesið uppúr henni fyrir mig?"  Og þá er svarað: "Tja, hún er bara svona til viðmiðunar" eða "við erum ekki búin að setja hana fram ennþá"!!

Ég á 3 börn og 1 mann og oft þarf maður að panta tíma fyrir einhvern hjá tannlækni og að sjálfsögðu reynir maður að finna hagstætt verð.  Ekki mætir maður bara hjá næsta tannlækni án þess að hafa huuuuugmynd um hvað djobbið kostar, enda oft um fleiri, fleiri þúsundir að ræða og þá skiptir hver þúsundkall máli.  Og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ofangreindar samræður eiga sér stað við ritara tannlækna í HVERT EINASTA skipti sem ég geri þetta. 

Og alltaf endar það þannig að maður fer til tannlæknis án þess að vita verðið og fær svo ALLTAF áfall þegar kemur að greiðslu.

Þetta er ekki hægt og ég krefst þess að tannlæknar sýni okkur tanneigendum þá virðingu að gefa upp verð á þjónustu sinni, allir aðrir verða að gera það, hvað er það sem gerir ykkur tannlækna svona sérstaka?

Ef einhver getur bent mér á tannlækni sem gefur manni upp verð fyrir þjónustuna án múðurs eða ef einhver tannlæknir er til í að gera mér tilboð í að fjarlægja endajaxl þá þigg ég það með þökkum Pinch

p.s. þessi færsla er endurbirting (með breytingum) á færslu sem ég skrifaði um tannlæknavandamálið í júní s.l.  Sjá HÉR!


mbl.is Fékk dónaleg bréf frá tannlæknunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er einu sinni búið að jarða kallinn?

Ég á hreinlega ekki til orð yfir það hvernig mönnum getur látið sér detta það í hug að græða á dauða fólks.  Og mér er bara alveg s*í*sama þó maðurinn hafi verið frægur.  

Ég er semsagt hér að vísa í nýlegt fráfall Pavarotti's og svo nýju geislaplötunnar sem Skífan var að setja í sölu; Pavarotti Forever.  Það þarf sko enginn að segja mér það að þessi plata var í útgáfuferli áður en kallinn gaf upp öndina, þetta er bara græðgi og ekkert annað.  Hann verður ennþá dáinn eftir ár og ég hefði haldið að fólk myndi frekar kaupa disk með hans nafni "í tilefni þess að ár er liðið frá fráfalli Pavarotti's" heldur en á meðann hann er ennþá volgur.

Skamm Skífan Angry


Hómófóbía

Er máttleysi og hiti ekki aðaleinkenni hómófóbíu? 

Hinsvegar ef hann er máttlaus í hnjánum gæti það verið merki um að kallinn sé ástfanginn, og þá eflaust af öðrum sér líkum, annars hefði hann ekki lagst inná sjúkrahús.  Það er auðvitað mjög sjúkt að verða ástfanginn af öðrum sér líkum og sjúkrahúslega óhjákvæmileg í slíkum tilfellum, sér í lagi ef hnjámáttleysinu fylgja hitakóf


mbl.is Forseti Póllands lagður inn á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband