Eruð þið ekki að gleyma einhverju?

Börnin fá sitt pláss, karlarnir fá sitt pláss og við konurnar verðum að gjöra svo vel og fara að versla einar því það er ekkert "pláss" í boði fyrir okkur!! 

Þvílíkur og annar eins dónaskapur!!  Angry  Ég er alveg hoppandi, hvínandi reið yfir þessari ósvífni!!  Hvar á ég þá að hanga á meðan maðurinn minn kaupir jólagjöfina mína og verslar föt á sjálfan sig??  Í barnahorninu með börnunum? 

Ég heimta þægilega, hljóðeinangraða stofu með öllum helstu tímaritunum ásamt te og kaffibar og sjónvarpi, þó það nú væri.  Eitt stykki PlayStation má alveg vera þar líka, en það má sleppa ofbeldis og bílaleikjum.

Ekki mun ég stíga fæti inn í þessa verslun fyrr en búið er að setja upp slíka aðstöðu fyrir mig (og þá auðvitað um leið, allar aðrar konur)!!!

 


mbl.is Pabbar í pössun í Hagkaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband