27.3.2009 | 16:19
"Sannleikurinn" að baki Vofunni
Þetta er nú aldeilis ótrúlegt. Hvað ef raunverulega sé um að ræða fjöldamorðingja, sem sé kona og vilji svo til að starfi í umræddri verksmiðju. Væri það nú ekki fáránleg tilviljun. En svo sleppur hún þar sem lögreglan telur að DNA hennar sé komið á bómullarpinnana vegna þess að hún hafi snert þá í verksmiðjunni en ekki vegna þess að það hafi raunverulega fundist á vettvangi. Hvað ef þessi kona var bara hundleið verksmiðjugella sem dundaði sér við það í vinnunni að reyna að hugsa um hinn fullkomna glæp. Svona til að létta sér lundina við (örugglega) hundleiðinlega vinnuna. Og datt þetta snjallræði í hug að fremja nokkur morð en að káfa líka á nógu andskoti mörgum bómullarpinnum í vinnunni til að villa um fyrir lögreglunni. Ætli það gæti verið . . . . .
Eftirlýstur fjöldamorðingi væntanlega ekki til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bíddu... afhverju er búið að slá því föstu að þetta sé KONA ? .... Síðast þegar ég vissi er flestir fjöldamorðingjar hvítir, vonsviknir karlmenn. Svo það er eins gott að þú valdir mér ekki VONBRIGÐUM með einhverju leiðindar tilsvari, annars áttu ekki von á góðu.
Brynjar Jóhannsson, 27.3.2009 kl. 18:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.