19.7.2007 | 16:22
Heppnir menn
Sá nýlega myndina Blood Diamonds og mæli eindregið með henni við alla þá sem ekki hafa séð hana. Maður veit svo sem margt um allt það ljóta sem gerist í heiminum en samt veit maður aldrei nóg og mér gjörsamlega blöskraði þegar ég horfði á þessa mynd. Algjör hryllingur og aumingja börnin, mér vöknar um augu bara af því að hugsa um þetta.
Þessir menn voru einstaklega heppnir að fá aðeins 45-50 ára fangelsisdóm mér finnst ævilangt fangelsi algjört lágmark fyrir svona menn, og þegar ég segi ævilangt þá meina ég til æviloka viðkomandi, þartil hann er dauður, dauður, dauður.
![]() |
Dæmdir í 45-50 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi í Síerra Leóne |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.7.2007 kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2007 | 12:20
Arftaki Davíðs
Svo það er þetta sem vakir fyrir henni! Nú fer maður að skilja aðeins betur hvernig landið liggur.
Jafn metnaðarfull manneskja og Ingibjörg Sólrun, getur ekki með nokkru móti tekið við svo mikilvægu embætti án þess að koma sér kirfilega fyrir í íslandssögunni. Ég tala nú ekki um eftir allt þetta vesen með hana og þennan flokk frá því hún stóð upp úr borgarstjórastólnum. Hún ætlar sér semsagt að sýna okkur öllum hver hún virkilega er og hvað í sig sé spunnið og hvaða leið er betri til þess en að koma á friði milli Palestínu og Ísrael?
Mér er svosem alveg sama hver tilgangur hennar er, eins lengi og friður kemst á á þessu svæði.
Hinsvegar er rétt að benda á það að Kóraninn talar um það að þegar endanlegur friður kemst á milli Palestínu og Ísrael að þá verði þessi frægi heimsendir sem allir eru alltaf að tala um. Til enn frekari fróðleiks vil ég líka segja frá því að til eru heimildir um það að Ísraelar hafi alltaf ætlað sér mikil yfirráð og því til staðfestingar er til mynt sem slegin var fyrir ca. 30-40 árum síðan (gæti verið eldri). Myntin sú er ísraelsk og sýnir hið Nýja Ísrael framtíðarinnar þar sem í dag er Palestína, Líbanon og Sýrland
![]() |
Utanríkisráðherra: Glufa opin í Mið-Austurlöndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.7.2007 kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2007 | 11:51
Komið hreint fram?
Að henda ömmu á öskuhaugana er svo fáránlega ruglað að manni gæti ekki einu sinni látið sér detta slíkt í hug.....eða hvað?
Er það ekki staðreynd að illa sé komið fram við aldraða á Íslandi í dag? Ætla að sjálfsögðu ekki að alhæfa um þetta, en staðreynd er það samt sem áður að slíkt á sér stað á stundum. Og enn verra að margir aldraðir einstaklingar á Íslandi hafa verið yfirgefnir af fjölskyldum sínum. Á Íslandi þarf maður ekki að fara með ömmu á öskuhaugana þegar hún er orðin of gömul, maður hættir bara að heimsækja hana. Þá er það bara búið.
Því vil ég biðja þau ykkar sem eruð nú að hneykslast á þessari framkomu en eigið sjálf ömmu sem þið hafið hætt að heimsækja að athuga það að ykkar framkoma er ekkert mikið skárri. Eini munurinn er sá að sjálfum ykkur líður mikið betur, þið hafið það ekki á samviskunni að hafa fleygt ömmu gömlu á haugana og reynið að segja sjálfum ykkur og öðrum að þið hafið bara ekki tíma til að sinna henni á meðan þetta indverska fólk þarf að lifa með því að hafa raunverulega farið með ömmu á haugana, ekkert hægt að fegra það neitt. Munurinn fyrir ömmuna er hinsvegar mjög lítill. Amma sem hefur verið yfirgefin; hvort heldur sem er á öskuhaugunum eða sínu eigin heimili er örugglega alveg í rusli
ÁFRAM AMMA!! (ps. orðið "amma" er hér samheiti yfir ömmur, afa, langömmur, langafa, mömmur, pabba, mömmur, frænkur, frændur og alla sem orðnir eru gamlir og öðrum háðir)
![]() |
Ömmu hent á haugana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.7.2007 kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2007 | 13:05
VERUM ÞAKKLÁT
Getið þið bent mér á 1 einasta land í heiminum þar sem allt er fullkomið?
Ísland er eina landið í heiminum þar sem þú getur sofið með svalahurðina á svefnherberginu galopna nótt eftir nótt af því að veðrið er svo gott, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öryggi fjölskyldunnar. Ísland er eina landið í heiminum þar sem þú getur skilið börnin þín eftir sofandi úti í vagni á meðan þú ferð inn í Bónus að versla og þú VEIST að það verður þarna ennþá þegar þú kemur til baka. Þessir hlutir eru svo mikils virði að smáhlutir eins og hátt bensínverð, ástand þjóðvega, umferðarþungi og matarverð er eitthvað sem ég myndi velja framyfir hitt hvenær sem er. Myndi hvergi annarsstaðar vilja búa í heiminum. Ég er með mínar skuldir, þarf að fæða 5 manna fjölskyldu á þessu matarverði, á bíl sem er rándýrt að reka og fussa og sveia yfir ástandi þjóðvega og bensínverði en ég er hamingjusöm og örugg, og það eru börnin mín líka.
Þið sem eruð að kvarta; hættið að kvarta og byrjið að njóta, lífið er yndislegt þrátt fyrir erfiðleika
![]() |
Íslendingar hamingjusamastir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.7.2007 kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.6.2007 | 15:20
Halló tannlæknar!
Hvað er þetta með tannlæknastéttina, ef ég mætti spyrja? Og vonandi að einhver tannlæknir svari mér og útskýri hversvega í ósköpunum maður getur ekki fengið uppgefið verð í síma áður en maður pantar tíma hjá þeim.
Svörin eru ALLTAF ferlega loðin og óskýr; "Tja, það fer eftir svo miklu, eiginlega ekki hægt að segja til um það". Og þá segir maður: "ertu til í að gefa mér svona gróflega áætlað, svo maður hafi einhverja hugmynd?" Og þá kemur: "Tja, það gæti verið svona á bilinu 10-20.000"
Svo svara líka ALLTAF stelpur eða konur í símann sem geta ekki svarað einni einustu spurningu nema segja: "bíddu aðeins" fyrst og spyrja einhvern annan. Og þá spyr maður: "Liggur ekki verðskrá frammi hjá ykkur, geturðu ekki bara lesið uppúr henni fyrir mig?" Og þá er svarað: "Tja, hún er bara svona til viðmiðunar" eða "við erum ekki búin að setja hana fram ennþá"!!
Ég á 3 börn og mann og oft þarf maður að panta tíma fyrir einhvern hjá tannlækni og að sjálfsögðu reynir maður að finna hagstætt verð. Ekki mætir maður bara hjá næsta tannlækni án þess að hafa huuuuugmynd um hvað djobbið kostar, enda oft um fleiri, fleiri þúsundir að ræða og þá skiptir hver þúsundkall máli. Og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ofangreindar samræður eiga sér stað við ritara tannlækna í HVERT EINASTA skipti sem ég geri þetta.
Og alltaf endar það þannig að maður fer til tannlæknis án þess að vita verðið og fær svo ALLTAF áfall þegar kemur að greiðslu.
Þetta er ekki hægt og ég krefst þess að tannlæknar sýni okkur tanneigendum þá virðingu að gefa upp verð á þjónustu sinni, allir aðrir verða að gera það, af hverju eru tannlæknar svona sérstakir?
Ef einhver getur bent mér á tannlækni sem gefur manni upp verð fyrir þjónustuna án múðurs eða ef einhver tannlæknir er til í að gera mér tilboð í að fjarlægja endajaxl sem er farin að gægjast út en ætlar sér að ryðja niður næsta jaxli við hliðina, þá þigg ég það með þökkum
Lífstíll | Breytt 27.7.2007 kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)