Færsluflokkur: Bloggar

Til hamingju Seltyrningar !

Mikið myndi ég nú vera til í að búa á Setljarnarnesi og fara aftur ein 12 ár og eiga kost á því að VERA HEIMA með litlu börnunum mínum í stað þess að þurfa að setja þau inn á heimili hjá ÓKUNNUGU FÓLKI á meðan beðið er eftir leikskólaplássi.  Tvímælalaust það sárasta sem ég hef þurft að gera um ævina.

Koma svo Reykjavík, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Akranes og þið allir hinir Íslands bæjir !!!  Svona á að gera þetta Smile

 Ef ég ætti heima á Seltjarnarnesi í dag og væri með lítil börn á þessum aldrei þá myndi ég senda bæjarstjórninni blómvönd með þökk fyrir frábært framtak.


mbl.is Foreldrar á Seltjarnarnesi fá styrki og greiðslur til dagforeldra afnumdar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og biluð plata . . . . .

Hvað er þetta með tannlæknastéttina, ef ég mætti spyrja?  Tannlæknar sem þorið:  Vinsamlega svarið eftirfarandi færslu:

Hvernig stendur á því að maður getur ekki fengið uppgefið verð á tannlæknaþjónustu í síma ÁÐUR en maður pantar tíma? 

Svörin eru ALLTAF ferlega loðin og óskýr; "Tja, það fer eftir svo miklu, eiginlega ekki hægt að segja til um það".  Og þá segir maður: "ertu til í að gefa mér svona gróflega áætlað, svo maður hafi einhverja hugmynd?"  Og þá kemur: "Tja, það gæti verið svona á bilinu 10-20.000" 

Svo svara líka ALLTAF stelpur eða konur í símann sem geta ekki svarað einni einustu spurningu nema segja: "bíddu aðeins" fyrst og spyrja einhvern annan.  Og þá spyr maður: "Liggur ekki verðskrá frammi hjá ykkur, geturðu ekki bara lesið uppúr henni fyrir mig?"  Og þá er svarað: "Tja, hún er bara svona til viðmiðunar" eða "við erum ekki búin að setja hana fram ennþá"!!

Ég á 3 börn og 1 mann og oft þarf maður að panta tíma fyrir einhvern hjá tannlækni og að sjálfsögðu reynir maður að finna hagstætt verð.  Ekki mætir maður bara hjá næsta tannlækni án þess að hafa huuuuugmynd um hvað djobbið kostar, enda oft um fleiri, fleiri þúsundir að ræða og þá skiptir hver þúsundkall máli.  Og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ofangreindar samræður eiga sér stað við ritara tannlækna í HVERT EINASTA skipti sem ég geri þetta. 

Og alltaf endar það þannig að maður fer til tannlæknis án þess að vita verðið og fær svo ALLTAF áfall þegar kemur að greiðslu.

Þetta er ekki hægt og ég krefst þess að tannlæknar sýni okkur tanneigendum þá virðingu að gefa upp verð á þjónustu sinni, allir aðrir verða að gera það, hvað er það sem gerir ykkur tannlækna svona sérstaka?

Ef einhver getur bent mér á tannlækni sem gefur manni upp verð fyrir þjónustuna án múðurs eða ef einhver tannlæknir er til í að gera mér tilboð í að fjarlægja endajaxl þá þigg ég það með þökkum Pinch

p.s. þessi færsla er endurbirting (með breytingum) á færslu sem ég skrifaði um tannlæknavandamálið í júní s.l.  Sjá HÉR!


mbl.is Fékk dónaleg bréf frá tannlæknunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hómófóbía

Er máttleysi og hiti ekki aðaleinkenni hómófóbíu? 

Hinsvegar ef hann er máttlaus í hnjánum gæti það verið merki um að kallinn sé ástfanginn, og þá eflaust af öðrum sér líkum, annars hefði hann ekki lagst inná sjúkrahús.  Það er auðvitað mjög sjúkt að verða ástfanginn af öðrum sér líkum og sjúkrahúslega óhjákvæmileg í slíkum tilfellum, sér í lagi ef hnjámáttleysinu fylgja hitakóf


mbl.is Forseti Póllands lagður inn á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaknið foreldrar

Þetta er auðvitað fáránlegt, og það sem er enn fáránlegra er að fólk skuli virkilega láta sér detta þetta í hug.  En þetta er auðvitað dæmigert fyrir þetta skilnaðarþjóðfélag sem við búum í.  Ég þekki auðvitað fullt af fráskildu fólki með börn, hver gerir það ekki, og það er alltaf sama sagan þegar skilnaður kemur upp; foreldrarnir byrja að rífast um hjá hvoru þeirra börnin eiga að búa og setningar eins og: "Ég á jafn mikinn rétt á barninu og þú" og "ég vil hafa barnið hjá mér" eru staðlaðar í skilnaðarrifrildum. 

Það er aldrei nokkurn tíman hugsað um hvaða rétt barnið á og mikil skömm að því að foreldrar geta ekki sett hagsmuni barna sinna fram yfir sína eigin.  Eitt sinn stóð ég frammi fyrir þeirri ákvörðun að flytja annaðhvort með ungt barn mitt úr landi, burt frá föður sínum sem það hafði lítil tengsl myndað við, eða að skilja barnið eftir í umsjá föður síns í þessa 8 mánuði, og gefa þeim tækifæri á að mynda tengsl sín á milli.  Þetta var erfið ákvörðun, því ég átti erfitt með að ímynda mér hvernig ég gæti SKILIÐ barnið mitt EFTIR í 8 mánuði.  En það var auðvitað bara mitt sjónarmið. 

Réttur barnsins var auðvitað sá að fá tækifæri til að mynda tengsl við BÁÐA foreldra, sama hversu mikið mér var í nöp við föðurinn.  Það var bara svo einfalt.  Ég var auðvitað sökuð um sjálfelsku og að vera með eigin hagsmuni í huga þegar ég ákvað að skilja barnið mitt eftir hjá FÖÐUR sínum þegar ég þurfti að fara og það var ekki EIN EINASTA manneskja í kringum mig sem studdi þessa ákvörðun mína, enginn sem taldi mig vera að gera rétt. 

En Guð veit hvað í hjarta mér bjó þegar þessi ákvörðun var tekin, og Hann er sá eini sem hefur vald til að dæma mig og mínar gjörðir.  Svo ég hafði ekki neinar áhyggjur, og hef ekki enn, af því hvað öðrum fannst um mína ákvörðun.

Ákvörðunin var mín og ákvörðunin var rétt.  Ég kom heim aftur, barnið var í fínu lagi og góð tengsl höfðu myndast á milli feðginanna.  Þó að samband þeirra á milli hafi verið mjög svo slitrótt síðan, þá eru sterk tilfinningatengsl enn til staðar þeirra á milli.  Og þetta tilfinningasamband er eitt það dýrmætasta sem ég hef gefið barninu mínu. 


mbl.is Ganga í tvo skóla vegna skilnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og afhverju í ósköpunum er það í heimsfréttum?

Gerist svona lagað aldrei á Íslandi, eða hvað?  Er ekki kominn tími á að senda þjófnaðarskýrslur úr íslenskum verlunum til Reuters svo allur heimurinn geti fylgst með smáþjófum á Íslandi líka, það má ekki gera ísraelska smáþjófa merkilegri en þá íslensku . . .

Hálfvitaleg frétt. . . .


mbl.is Reyndi að skipta stolnum skóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HALLÓ!

Er ekki allt í lagi?!!  Mér er svoleiðis nákvæmlega sama hver þessi kona er og hvað hún gerði áður, svona gera menn bara alls ekki!!!!!!!!!!  Og þetta á að sjálfsögðu að kæra enda var þetta alger óþarfi.  Það hefði vel verið hægt að loka manneskjuna bara inni og fylgjast með henni þartil henni yrði mál, og láta hana þá pissa í fötu.  Og það hefði KVEN lögga átt að gera!! 


mbl.is Konu haldið niðri og þvagsýni tekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað þýðir það eiginlega?

Er ekki kolamoli andstæða gullmola?  Það hefði ég haldið og því finnst mér þessi fyrirsögn algjörlega út úr kú.  Skil ekki svona.  Var ekki bara hægt að segja að nýja plata Madonnu lofaði góðu eða e. slíkt Pouty  ?
mbl.is Væntanleg plata Madonnu algjör kolamoli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldar Steini Díva fyrir hina ríku og frægu?

http://blogg.visir.is/nn/2007/08/09/39/
mbl.is Steini Díva krýndur dragdrottning Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moggablogg eða Vísir?

Hvort er betra, Moggablogg eða Vísisblogg?

Ég er svolítið búin að vera að skoða (svolítið mikið) bæði bloggin undanfarið og mér finnst miklu meira vera að ske á Moggabloggi, held líka að það séu fleiri bloggarar á Mogganum en Vísi.  Sem er leitt því það er fullt af skemmtilegum bloggurum á Vísi eins og á Mogganum.

Annars finnst mér að allir ættu að vera vinir og Moggabloggarar eiga að heimsækja Vísibloggara og öfugt.  Það er auðvitað algjör óþarfi að vera með einhvern meting eða ríg enda er ekkert nema mismunandi smekkur manna á hvort sé þægilegra bloggumhverfi sem ræður því hvorn staðinn menn velja.  Ekki það að mér finnist vera neinn rígur þarna á milli heldur finnst mér umgangurinn mætti vera meiri.

Í því skyni nefni ég hér nokkra Vísisbloggara sem mér þykir góðir og/eða skemmtilegir og hvet ykkur meðbloggara mína á Moggabloggi að kíkja til þeirra og kynna ykkur svo Vísisbloggarar fari kannski að auka heimsóknir sínar á Moggablogg Smile

Símon Birgisson > stuttar og skemmtilegar færslur, ágætis afþreyting aflestrar.

Hallmundur > hittir ekki endilega alltaf naglann á höfuðið en gaman að lesa hamarshöggin hans!

Guðmundur Brynjólfsson > Skemmtilegur penni hann Guðmundur, góður húmor þarna í gangi.

Veleda > það eru uppi getgátur um hvort hún sé eitthvað skyld Silvíu Nótt, veit ekki meir, en fáguð er hún þó  Shocking eða hitt þó . . . .

 


Hey!

Minn er líka vistvænn af því að ég nota hann aðeins einu sinni í viku og svo kolefnisjafnaði ég líka.  Fæ ég þá ekki skífu Shocking  ?
mbl.is Ókeypis í stæði fyrir visthæfa bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband