Færsluflokkur: Bloggar

Pant eiga botninn á Surtsey

Er ekki annars alveg örugglega hægt að snúa henni á hvolf  Pinch  ?
mbl.is Kanadamenn gera lítið úr norðurpólsleiðangri Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég elska Ísland!

Eitt af þeim atriðum sem gerir Ísland svo assgoti magnað og spes.  I love my country InLove I love you to pieces !!

Á sumrin sakna ég fallegu kyrrðarinnar á dimmu vetrarkvöldi þegar allt er hvítt og bjart af þykkri og mikilli snjóþekju.  Á veturnar sakna ég björtu og lifandi sumarkvöldanna sem aldrei virðast neinn endi ætla að taka. 

Bara hreinlega dýrka þetta land, takk Guð fyrir að gefa mér Ísland Heart

 


mbl.is Snjóaði í 15° hita svo jörðin varð alhvít
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eiga menn að gera?

Það verður fróðlegt að sjá hvert þetta leiðir. . . . . erum við að horfa uppá myndun nýrrar heimsmyndar?  Rússar og arabar á móti okkur hinum?  Við erum auðvitað "Hin", verandi fræknir sitjendur á lista hinna staðföstu þjóða. 

Annars finnst mér Pútín alveg jafnhættulegur maður og Bush, þeir eru báðir gjörsamlega veruleikafirrtir og með allt of stóran skammt af mikilmennskubrjálæði, Pútín hefur samt legið í dvala en mér er ekki rótt ef hann er að skríða á fætur núna, sama hverjir hans bandamenn skyldu vera.

Hinsvegar finnst mér tími til komin að Palestínumenn finni sér stóran bróður til að hjálpa sér sem er miklu stærri en stóri ruddi og litli ruddi sem alltaf hreint eru að bögga þá.  Þeir eiga fullan rétt á því.


mbl.is Fatah óskar eftir stuðningi Rússlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÓ ÞAÐ NÚ VÆRI . . .

. . . að risarnir nýti sér markaðsráðandi stöðu.  Þannig er það alltaf í öllu og vegna þess að eina fólkið sem kemst almennilega áfram í viðskiptum eru þeir sem eru tilbúnir til að selja ömmu sína skrattanum þess vegna mun þetta alltaf verða svona  Devil

 Annars er þetta bara góð áminning til mín um að HÆTTA að versla í þessum lyfjaverslunum og fara annað með mín viðskipti.  LYFJAVER á Suðurlandsbraut er eins og Bónus lyfjaverslananna á höfuðborgarsvæðinu og eru alltaf með ódýrustu lyfin.  Þar að auki bjóða þeir uppá lyfjaskömmtun í pokum ÓKEYPIS og heimsendingu lyfja ÓKEYPIS.  Geri aðrir betur. 

 Er sjálf búin að vera í lyfjaskömmtun hjá þeim í 4 ár og það hefur aldrei klikkað að ég fái lyfin mín, fæ svo gíróseðil heim mánaðarlega og tilkynningu þegar ég þarf að endurnýja lyfseðilinn minn.  Nýlega fór ég svo að bæta vítamínum í lyfjaskömmtunina og ef mig vantar eitthvað annað með þá get ég hringt og fengið sent með næstu sendingu!  ÓKEYPIS!!!

Allir saman nú: Gefum *kít í LYFJU og LYF & HEILSU og verslum við lyfjakaupmanninn á horninu í staðinn, eins og LYFJAVER.  Allt hitt sem þessar verslanir selja getum við svo verslað í Hagkaup eða næstu snyrtivöruverslun  Cool.


mbl.is Hótuðu gjaldþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læknar eru bara menn

... eða konur, en þið vitið hvað ég meina.  Þeir eru allaveg ekki Guð. 

Þessvegna get ég ómögulega lagt allt mitt traust á lækna og fylgt þeim í blindni.  Stundum verður maður að vera frekur og krefjast rannsókna eða meðferða sem maður telur að nauðsyn sé á, maður getur þá allavega sagt eftir á að maður hafi reynt.  Ábyrgðin er samt sem áður alltaf læknisins og hans starfsfólks en það auðveldar manni ekki að vinna úr hlutunum eftir á að vera með það á samviskunni að hafa verið of feiminn til að tala hreint út við lækninn. 

"Hvað ef ég hefði sagt þetta eða hitt???"  Crying


mbl.is Læknamistök leiddu til dauða barns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið var að beljan bar . . .

Tími til kominn að einhver láti sig hafa það að kíkja þarna niður til Afríku, mæli með því að Ingibjörg Sólrun láti Darfur verða sitt næsta stopp þegar hún er búin þarna fyrir austan. 

Svo finnst mér líka að við eigum að GERA EITTHVAÐ fyrir þetta fólk, en ekki bara að vorkenna þeim.  Ég myndi vilja sjá 20-30 fjölskyldur fluttar hingað sem flóttamenn og þá helst barnmargar fjölskyldur.  Aumingja börnin eiga allt það góða skilið sem okkar elsku börn fá í þessu Guðsblessaða landi okkar.  Verum nú góð og deilum því með öðrum.  Annað eins höfum við gert fyrir fjölskyldur frá Víetnam, Austur-Evrópu, Suður-Ameríku og nú ætti að vera komið að Afríku.  Heart 


mbl.is Sarkozy og Brown saman til Darfur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppnir menn

Sá nýlega myndina Blood Diamonds og mæli eindregið með henni við alla þá sem ekki hafa séð hana.  Maður veit svo sem margt um allt það ljóta sem gerist í heiminum en samt veit maður aldrei nóg og mér gjörsamlega blöskraði þegar ég horfði á þessa mynd.  Algjör hryllingur og aumingja börnin, mér vöknar um augu bara af því að hugsa um þetta. 

Þessir menn voru einstaklega heppnir að fá aðeins 45-50 ára fangelsisdóm mér finnst ævilangt fangelsi algjört lágmark fyrir svona menn, og þegar ég segi ævilangt þá meina ég til æviloka viðkomandi, þartil hann er dauður, dauður, dauður.


mbl.is Dæmdir í 45-50 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi í Síerra Leóne
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arftaki Davíðs

Svo það er þetta sem vakir fyrir henni!  Nú fer maður að skilja aðeins betur hvernig landið liggur. 

Jafn metnaðarfull manneskja og Ingibjörg Sólrun, getur ekki með nokkru móti tekið við svo mikilvægu embætti án þess að koma sér kirfilega fyrir í íslandssögunni.  Ég tala nú ekki um eftir allt þetta vesen með hana og þennan flokk frá því hún stóð upp úr borgarstjórastólnum.  Hún ætlar sér semsagt að sýna okkur öllum hver hún virkilega er og hvað í sig sé spunnið og hvaða leið er betri til þess en að koma á friði milli Palestínu og Ísrael?

 Mér er svosem alveg sama hver tilgangur hennar er, eins lengi og friður kemst á á þessu svæði. 

Hinsvegar er rétt að benda á það að Kóraninn talar um það að þegar endanlegur friður kemst á milli Palestínu og Ísrael að þá verði þessi frægi heimsendir sem allir eru alltaf að tala um.  Til enn frekari fróðleiks vil ég líka segja frá því að til eru heimildir um það að Ísraelar hafi alltaf ætlað sér mikil yfirráð og því til staðfestingar er til mynt sem slegin var fyrir ca. 30-40 árum síðan (gæti verið eldri).  Myntin sú er ísraelsk og sýnir hið Nýja Ísrael framtíðarinnar þar sem í dag er Palestína, Líbanon og Sýrland  Devil 


mbl.is Utanríkisráðherra: Glufa opin í Mið-Austurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERUM ÞAKKLÁT

 

 Getið þið bent mér á 1 einasta land í heiminum þar sem allt er fullkomið? 

Ísland er eina landið í heiminum þar sem þú getur sofið með svalahurðina á svefnherberginu galopna nótt eftir nótt af því að veðrið er svo gott, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öryggi fjölskyldunnar.  Ísland er eina landið í heiminum þar sem þú getur skilið börnin þín eftir sofandi úti í vagni á meðan þú ferð inn í Bónus að versla og þú VEIST að það verður þarna ennþá þegar þú kemur til baka.  Þessir hlutir eru svo mikils virði að smáhlutir eins og hátt bensínverð, ástand þjóðvega, umferðarþungi og matarverð er eitthvað sem ég myndi velja framyfir hitt hvenær sem er.  Myndi hvergi annarsstaðar vilja búa í heiminum.  Ég er með mínar skuldir, þarf að fæða 5 manna fjölskyldu á þessu matarverði, á bíl sem er rándýrt að reka og fussa og sveia yfir ástandi þjóðvega og bensínverði en ég er hamingjusöm og örugg, og það eru börnin mín líka.

Þið sem eruð að kvarta; hættið að kvarta og byrjið að njóta, lífið er yndislegt þrátt fyrir erfiðleika  Smile


mbl.is Íslendingar hamingjusamastir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halló tannlæknar!

Hvað er þetta með tannlæknastéttina, ef ég mætti spyrja?  Og vonandi að einhver tannlæknir svari mér og útskýri hversvega í ósköpunum maður getur ekki fengið uppgefið verð í síma áður en maður pantar tíma hjá þeim. 

Svörin eru ALLTAF ferlega loðin og óskýr; "Tja, það fer eftir svo miklu, eiginlega ekki hægt að segja til um það".  Og þá segir maður: "ertu til í að gefa mér svona gróflega áætlað, svo maður hafi einhverja hugmynd?"  Og þá kemur: "Tja, það gæti verið svona á bilinu 10-20.000" 

Svo svara líka ALLTAF stelpur eða konur í símann sem geta ekki svarað einni einustu spurningu nema segja: "bíddu aðeins" fyrst og spyrja einhvern annan.  Og þá spyr maður: "Liggur ekki verðskrá frammi hjá ykkur, geturðu ekki bara lesið uppúr henni fyrir mig?"  Og þá er svarað: "Tja, hún er bara svona til viðmiðunar" eða "við erum ekki búin að setja hana fram ennþá"!!

 Ég á 3 börn og mann og oft þarf maður að panta tíma fyrir einhvern hjá tannlækni og að sjálfsögðu reynir maður að finna hagstætt verð.  Ekki mætir maður bara hjá næsta tannlækni án þess að hafa huuuuugmynd um hvað djobbið kostar, enda oft um fleiri, fleiri þúsundir að ræða og þá skiptir hver þúsundkall máli.  Og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ofangreindar samræður eiga sér stað við ritara tannlækna í HVERT EINASTA skipti sem ég geri þetta. 

Og alltaf endar það þannig að maður fer til tannlæknis án þess að vita verðið og fær svo ALLTAF áfall þegar kemur að greiðslu.

Þetta er ekki hægt og ég krefst þess að tannlæknar sýni okkur tanneigendum þá virðingu að gefa upp verð á þjónustu sinni, allir aðrir verða að gera það, af hverju eru tannlæknar svona sérstakir?

Ef einhver getur bent mér á tannlækni sem gefur manni upp verð fyrir þjónustuna án múðurs eða ef einhver tannlæknir er til í að gera mér tilboð í að fjarlægja endajaxl sem er farin að gægjast út en ætlar sér að ryðja niður næsta jaxli við hliðina, þá þigg ég það með þökkum Pinch


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband